Hæ skvísur.. og takk fyrir síðast :)
Ég klambraði saman nýrri síðu fyrir okkur áðan. Hún ætti að vera auðveldari í notkun og vonandi líkar ykkur hún ágætlega (það má breyta litnum en mér fannst bleikur bara eitthvað svo við hehe)
Nýja síðan er HÉR
Þetta skrifaði
Maren
2:54 PM
Ljómandi fínn saumó í gær og þrusu veitingar. Fór lítið fyrir slúðrinu en bætum vonandi úr því sem fyrst ;o) Ég vil endilega taka upp umræðuna frá því í gær um að endurbæta og breyta síðunni okkar... þetta er orðið full þreytt útlit auk þess sem það geta ekki allir póstað hér inn. Hvað segiði um að skipta og hver býður sig fram að græja nýja síðu ??
p.s það var rosalega fínt heimilið þitt Maren, kem fljótlega aftur í heimsókn :o)
Þetta skrifaði
Lilja
1:18 PM
Fyrsti saumaklúbbur ársins
Verður haldinn hjá mér á næsta fimmtudag kl 20 :)
Svo þið flykkist nú ekki allar heim til múttu þá er betra að tilkynna fyrir þær sem ekki vita að ég er flutt og bý nú á Háholti 27, þó mamma hefði nú pottþétt alveg mjög gaman af því að fá ykkur í heimsókn hehe
Vonandi sjáumst við sem flestar í stuði með Guði
Þetta skrifaði
Maren
1:52 PM
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla
Hjá mér og mínum er allt fínt að frétta, er enn í jólafríi (voða næs). Var að enda við að taka niður jólaskrautið og er að spá í að þrífa á næstu dögum (borgar sig ekkert að ofgera sér). Svo er verið að reyna að mála eins og alltaf, reyna að koma upp smá safni. Gekk ágætlega í prófunum, er búinn að fá tvær einkunnir (staðist) og á vona á einni í viðbót á næstu dögum, sem verður að sjálfsögðu staðist.......held það nú? Skólinn byrjar svo á mánudaginn hjá mér (17.jan). Það verður voða fína að byrja að gera eitthvað af viti, þá nennir maður allavega að gera eitthvað hérna heima.
Jólin voru annars mjög fín hjá okkur, við vorum tvö á aðfangadag hérna heima hjá okkur. Svo var bara verið að undirbúa matarboð hérna á jóladag sem var svo haldið á annan í jólum (fjölskyldan kom) 18 stk takk fyrir takk. Stóðum okkur eins og hetjur þar.
Á áramótunum komu svo tengdafjölskyldan í mat, tengdó hafði held ég bara aldrei séð eins mikið að flugeldum á allri sinni ævi.......enda ekki margir að sprengja á Laugarvatni...ein og ein á stangli. Svo fóru þau heim á nýársdag. Og ég er búinn að slappa af síðan þá!
Núna um helgina liggur leiðin í menninguna á Akranesi, ætla að vera góðu yfirlæti hjá mömmu og pabba. Fara í nokkrar heimsóknir þar sem maður kom ekkert á Akranes um hátíðarnar. Kannski að maður rekist einhverjar af ykkur.
Jæja ég bið að heilsa í bili og hafið það sem allra best.
Kveðja Erna Hafnes
Þetta skrifaði
Erna
3:49 PM
Ég dauðskammast mín alveg hreint. Ég ætlaði að vera svo dugleg að bera út jólakortin sjálf í ár (aðallega vegna þess að ég gleymdi alltaf að fara á pósthúsið) en það tókst nú ekki betur til en það að kortin til Ernu Hafnes og Hrannar eru ennþá á milli sætanna í bílnum mínum (og Erna býr í næsta húsi við mig... hversu latur er hægt að vera ??) :o(
En allavega gleðilegt ár elskurnar mínar, og innilega hamingjuóskir til Láru Dóru sem átti 26 ára afmæli á þriðjudaginn var :o)
Þetta skrifaði
Lilja
5:32 PM
Hæ hæ allar saman!!
Ég vil nú bara byrja á því að óska ykkur gleðilegra jóla, þó að þau séu nú löngu búin....
Ég er nú búin að hafa það ansi hreint fínt, maður er bara búinn að vera á beit eins og versti átsjúklingur, en koma tímar koma ráð... heheh!! Maður er nú aldeilis búinn að strengja áramótaheit *hóst*.... sjáum til hvort maður standi við það sem maður ætlar sér á nýju ári....
En útí aðra sálma, prófin gengu bara ágætlega, fyrir utan eitt, þarf að fara í upptökupróf 4.janúar!!
Svo bara hlakka ég ofsalega til að byrja í skólanum, held að þetta verði skemmtileg önn núna... þangað til annað kemur í ljós!! :o)
En jæja, best að drífa sig heim til múttu og pabba, Geiri minn byrjaður að elda áramótasteikina þar á bæ (mamma greyið er að vinna). Vonandi hafið þið allar það sem best um áramótin. Hittumst svo hressar á nýju ári.
Áramótakveðjur frá
Ásu pjásu
Þetta skrifaði
Ása Þóra
4:07 PM
Vil hér með óska Láru Dóru og Hannesi innilega til hamingju með nafnið á litla prinsinum þeirra... Ellert Lár Hannesson, rosa flott :o)
Þetta skrifaði
Lilja
3:59 PM
Hæ, hæ ég er hérna á næturvakt (er alveg að verða búin, en þá eru reyndar næstu tvær nætur eftir...) og er að spá í jólakökukvöldið sem ég vil alveg endilega ekki missa af. Ég var að spá í hvort 20. des sé ekki inni í myndinni (ég kemst þá og svo held ég að Ása sé líka í fríi þá). Annars ætla ég ekkert að vera að frekjast neitt með þetta, en ég er búin að athuga hvort möguleiki sé á skiptum ef ákveðið verður að halda hittinginn þann 22. en ekki er möguleiki á skiptum :o(
Vona að þetta fari allt að skírast, bið að heilsa ykkur öllum
Kveðja Erna á nattevakten
Þetta skrifaði
Erna hjúkka
7:14 AM
Sælar veriði, hvað er að frétta af ykkur? Af mér er það að frétta að nú nýt ég fyrstu próflausu jólanna minna :o) Ég kann eiginlega ekkert á þetta, þ.e. að vera í fríi frá prófum á þessum árstíma, en það venst ágætlega get ég sagt ykkur. Ég er búin að baka 6 smákökusortir, skinkuhorn og tvær tegundir af lagtertum, svo á ég eftir að baka aðeins meira, gera ís og loks laufabreuðin, en þau geri ég með mömnu og frænkum mínum (mömmu megin)á laugardaginn. Þannig að það er bara allt á fullu. Svo þarf maður líka að fara að drýfa jólaseríurnar upp (kannski ég byrji á því í dag) ætli ég sé ekki síðust af ykkur að gera það!
Ég er farin að hlakka til að hitta ykkur í jólahittingnum sem Áslaug ætlar að halda heima hjá Jónínu og Gumma rétt fyrir jólin. Við þurfum bara að fara að fastsetja einhverja dagsetningu svo að sem flestar af okkur geti mætt. Svo má ekki gleyma pakkaleiknum :o)
Bið að heilsa ykkur elskurnar, gangi ykkur sem eruð í prófum bara rosalega vel og ykkur hinum bara líka í því sem þið eruð að gera, bæjó Erna
Þetta skrifaði
Erna hjúkka
1:46 PM
Sælar stelpur og takk fyrir síðast!
Þetta var nú meira fjörið. Nú svo að við gerum langa sögu stutta þá hittumst við kl 6. Síðan voru pantaðar pizzur og allar átu á sig gat. Síðan var bara tekið á drykkjunni og vorum við fljótar að komast í gírinn, það var bara eins og þessi hópur hefði hist í gær, því að þó svo að sumar okkar hefðu ekki hist í nokkur ár var það ekki að sjá. Þegar leið á kvöldið tóku við drykkjuleikir sem að gerðu stormandi lukku og sá Áslaug alveg um þá. Þess má geta að Áslaug var leynigesturinn þetta kvöld. Hún kom okkur alveg á óvart með því að mæta bara á svæðið, hún var búin að láta okkur vita að hún væri upptekin og fannst okkur það voða leiðinlegt en það breyttist nú aldeilis og því næst voru stigin nokkur dansspor. Sigga Ósk kom okkur líka á óvart og kom með gjafir handa öllum. Hún er að vinna í kertasmiðju og gaf okkur öllum jólakerti sem að var jólatré. Rosalega flott og jólalegt. Þegar leið á nóttina var síðan ákveðið að kíkja í bæinn og fór þá hersingin að stað og skundaði á Hressingarskálann. Þar var dansað eitthvað frameftir. En sumar fóru fyrr heim en aðrar. Ég, Kolla og Ása Þóra stungum bara af í taxa og drifum okkur heim. Höfum orðið ekkert úthald. (hehehehe) Við fórum bara heim og fengum okkur að borða og smá spjall og síðan beint á koddann. Við vöknuðum síðan kl 11 og þá var farið í það að skúra út. Óhætt er að segja að þetta hafi verið eins og svínastía en það var allt í lagi, þannig á þetta að vera. Síðan voru skvísurnar sóttar kl13 af G. Ernu og fleirum og þær brunuðu uppá skaga. Þetta partý tókst alveg svaka vel og höfum við ákveðið að gera þetta árlegt og vera næst uppá skaga!
Ætla ekki að hafa það fleira í bili,
Kveðja Hrönn
Þetta skrifaði
Hrönn
1:51 PM
Og það var prins!
Hún elsku Lára Dóra okkar var rétt í þessu að eignast lítinn dreng. Þetta skeði allt mjög fljótt þannig að ég er ekki með miklar fréttir. Hann er voða flottur og fæddist 17 merkur og 53,5 cm. Ég vona að ég fari rétt með! Þetta gekk voða vel og fljótt!!! Til hamingju elsku litla fjölskylda með nýja meðliminn. Ég kem aftur þegar ég hef fengið fleiri fréttir. Kveð að sinni.
Yfir og út!
Kveðja
Hrönn
Þetta skrifaði
Hrönn
10:30 PM